Stöðug en afar hæg þróun

Rannsóknir fræðafólks við Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands varpa mikilvægu ljósi á hversu hæg þróun er í á sviði jafnréttis í æðstu stöðum. Í nýlegri grein um áhrif kynjakvótalaga í stjórnum fyrirtækja er sérstaklega greint hvernig og hvort slík lög hafi haft svokölluð smitáhrif yfir í framkvæmdastjórnir og forstjórastöður. Niðurstöðurnar eru skýrar, slík áhrif hafa verið takmörkuð. Hlutfall kvenna í stöðum æðstu stjórnenda, framkvæmdastjóra og forstjóra, hækkaði úr 14,6% árið 2007 í 18,6% árið 2025. Heildarhækkunin nemur því rúmum fjórum prósentustigum á 17 árum. Þróunin er stöðug, en afar hæg, oft aðeins um örfá tíunduhlutaprósent á ári. Við lok tímabilsins eru konur enn undir fimmtungi æðstu stjórnenda í fyrirtækjum. Þessi gögn sýna að þótt kynjakvótalög í stjórnum hafi skilað verulegum árangri hjá þeim fyrirtækjum sem þau ná til þá hafa þau ekki haft áhrif á kynjahlutföll í framkvæmdastjórnum félaga.

Fréttina má lesa á mbl.is.