Sigríður Benediktsdóttir tekur við faglegri stjórn MPA-EPM náms við Columbia

Sigríður Benediktsdóttir, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rannsakandi við Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi, hefur tekið við faglegri stjórn MPA in Economic Policy Management (MPA-EPM) námsins við Columbia háskóla í New York.

MPA-EPM er alþjóðlegt meistaranám sem leggur meðal annars sérstaka áherslu á seðlabanka og fjármálamarkaði og tengir saman hagfræði, stefnumótun og stjórnun í alþjóðlegu samhengi. Í rúma þrjá áratugi hefur námið laðað að sér sérfræðinga og stjórnendur sem starfa við hagstjórn, fjármálakerfi og opinbera stefnumótun, meðal annars í seðlabönkum, ráðuneytum, alþjóðastofnunum og fjármálafyrirtækjum víðs vegar um heim. Útskrifaðir nemendur mynda í dag öflugt alþjóðlegt tengslanet sérfræðinga og stjórnenda sem spannar 140 lönd.

Sigríður er með umfangsmikla reynslu af fjármálamörkuðum og hagstjórn, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi, meðal annars frá Seðlabanka Íslands, bankaráði Landsbankans, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Seðlabanka Bandaríkjanna. Þá kennir hún MBA-nemendum við Háskóla Íslands, auk þess að kenna við Columbia háskóla og Yale háskóla.

Það er jafnframt gaman að segja frá því að tengsl MPA-EPM námsins við Setrið ná einnig til Freyju Vilborgar Þórarinsdóttur er lauk námi þar 2016 og stundar nú doktorsnám við Viðskiptafræðideild HÍ undir handleiðslu Ástu Dísar Óladóttur, forseta Viðskiptafræðideildar og stofnanda Setursins.