Ný grein birt á Alþjóðabaráttudegi kvenna – 8. mars!
Það er sérstaklega ánægjulegt að ný rannsókn okkar um gender lens investing skuli birtast á Alþjóðabaráttudegi kvenna, 8. mars.
Greinin Gender Lens Equity Funds: A Methodological Breadth–Accountability Depth Framework and Observed Outcomes hefur verið birt í tímaritinu Corporate Social Responsibility and Environmental Management.
Í greininni eru 43 fjárfestingasjóðir sem segjast fjárfesta með svokölluðum kynjagleraugum (gender lens) kortlagðir. Nýtt greiningarlíkan var þróað sem metur annars vegar hversu víðtæk jafnréttisviðmið sjóðirnir nota og hins vegar hversu mikla ábyrgð og gagnsæi þeir sýna í framkvæmd.
Niðurstöðurnar benda meðal annars til þess að merkið “gender lens” segir ekki alltaf mikið um raunverulega aðferðafræði, ábyrgð eða árangur sjóðanna. Því er mikilvægt að auka gagnsæi og fá skýrari viðmið svo fjárfestar geti metið slíka sjóði á traustari grundvelli.
Það er sérstaklega ánægjulegt að fyrsti höfundur greinarinnar er doktorsnemandinn Freyja Vilborg Þórarinsdóttir og að sjá rannsókn úr doktorsverkefni hennar birtast í jafn virtu og vel metnu alþjóðlegu ritrýndu tímariti.