Á ráðstefnunni Viðskipti og vísindi, sem fram fór í síðustu viku í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, var haldinn viðburðurinn Konur fjárfestum – hreyfing sem breytir leiknum. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi Rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi og Arion banka.
Í upphafi fluttu erindi Ásta Dís Óladóttir, prófessor og stofnandi rannsóknasetursins, Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum Arion banka, og Sigrún Ósk Jakobsdóttir, mannauðsstjóri Advania á Íslandi. Að þeim loknum fór fram líflegt sófaspjall þar sem Benedikt Gíslason forstjóri Arion banka, María Björk Einarsdóttir forstjóri Símans og Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima ræddu stöðu jafnréttismála undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur stjórnarformanns setursins.
Á fundinum kom fram að þrátt fyrir að Ísland hafi leitt jafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins í 16 ár hafi þróunin verið neikvæð á ákveðnum sviðum, sérstaklega hvað varðar stöðu kvenna í stjórnunarstöðum og efnahagslega þátttöku þeirra.
Ný rannsókn Rannsóknasetursins sýnir að konur í leiðtogastöðum fjárfesta síður en karlar, þrátt fyrir mikla menntun og reynslu. Fjárfestingar eru oft takmarkaðar við fáa eignaflokka og sjálfstraust í fjárfestingaákvörðunum mælist mjög hóflegt. Á sama tíma benda alþjóðleg gögn til þess að konur nái góðri langtímaávöxtun þegar þær fjárfesta, sem bendir til þess að vandinn liggi frekar í þátttöku en getu.
Einnig var bent á að hindranir séu ekki aðeins fjárhagslegar heldur einnig félagslegar. Skortur á fyrirmyndum, takmörkuð fjármálafræðsla á unga aldri og lægra sjálfstraust hafa áhrif á þátttöku kvenna í fjárfestingum, jafnvel meðal þeirra sem gegna leiðtogahlutverkum.
Átakið Konur fjárfestum hefur á skömmum tíma náð til þúsunda kvenna og stuðlað að aukinni þátttöku þeirra á fjármálamarkaði. Yfir 9.000 konur hafa tekið þátt í viðburðum og merki eru um aukna fjárfestingarvirkni.
Lykilboðskapur viðburðarins var skýr. Þrátt fyrir sterka stöðu Íslands í formlegu jafnrétti sé raunverulegt jafnrétti ekki náð nema með auknu valdajafnvægi í efnahagslífinu. Til þess þurfi að jafna aðgang að fjármagni, fjárfestingum og ákvarðanatöku.