Katrín Jakobsdóttir, stjórnarformaður Rannsóknaseturs um jafnrétti í atvinnu- og efnahagslífi, ávarpaði Danmerkurdeild FKA á fjölsóttu málþingi sem haldið var í Kaupmannahöfn þann 24. október, á kvennafrídeginum.
Um 150 konur mættu á Nordatlantens Brygge til að taka þátt í málþinginu sem fjallaði um kaflaskil í breiðum skilningi þess orðs. Katrín fjallaði um þátttöku sína í stjórnmálum í samhengi við samfélagsþróun og þróun jafnréttismála, allt frá kvennafrídeginum 1975. Meðal annars um kerfisbreytingar í leikskólamálum, þróun fæðingarorlofs, baráttuna fyrir jöfnum launum og baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi. Hún fjallaði líka um bakslagið sem orðið hefur víða um heim í jafnréttismálum og mannréttindum almennt og um hlutskipti kvenna í stjórnmálum út frá eigin reynslu.