Katrín Jakobsdóttir, stjórnarformaður Rannsóknaseturs um jafnrétti í atvinnu- og efnahagslífi, er stödd í New York þar sem hún hefur tekið þátt í ýmsum viðburðum um jafnréttismál. Katrín tók þátt í umræðum um kynbundið ofbeldi á vegum Reykjavík Global Forum og All In þar sem Tarana Burke var á meðal þátttakenda en hún var forvígiskona Metoo-hreyfingarinnar.
Þá tók Katrín þátt í umræðum um stöðu kvenna í Afganistan en sá fundur var skipulagður af fastafulltrúa Afganistan hjá Sameinuðu þjóðunum. Konur í Afganistan hafa markvisst verið sviptar mannréttindum eftir valdatöku Talibana 2021, þar á meðal réttinum til menntunar, til vinnu og til að yfirgefa heimili sitt. Ný skýrsla UN Women sýnir skelfilega stöðu kvenna en um 7% kvenna sækja vinnu í landinu og um helmingur þeirra kvenna sem rætt er við yfirgefur heimili sitt einu sinni til tvisvar í mánuði. Þá er heilbrigðisþjónusta af skornum skammti og framlög alþjóðasamfélagsins til frjálsra félagasamtaka sem vinna í þágu kvenna hafa verið skert verulega.