Ísland er sautjánda árið í röð í fyrsta sæti á Global Gender Gap Index sem Alþjóðaefnahagsráðið birti fyrir árið 2026. Þegar sjónum er beint að atvinnulífinu er staðan þó mun síður jöfn. Ísland er í 10. sæti hvað varðar efnahagslega þátttöku og tækifæri, konur eru um 41% stjórnenda og æðstu embættismanna og aðeins 17% fyrirtækja eru með konu sem æðsta stjórnanda.
Ný útgáfa Global Gender Gap Report dregur fram sterka stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði. Ísland er í fyrsta sæti heildarvísitölunnar með skor upp á 0,930, sem þýðir að 93% af því kynjabili sem vísitalan mælir hefur verið lokað. Heildarstaðan segir þó ekki alla söguna. Þegar efnahagsleg þátttaka og tækifæri eru skoðuð, sem Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi beinir sjónum sínum sérstaklega að, er Ísland í 10. sæti af 145 ríkjum, með skor upp á 0,816. Staðan hefur batnað frá síðasta ári, þegar skorið var 0,798, en niðurstöðurnar sýna jafnframt að enn er talsvert kynjabil til staðar í íslensku atvinnulífi.
Konur 41% stjórnenda, en mun sjaldnar æðstu stjórnendur fyrirtækja
Einn skýrasti munurinn birtist í stjórnunarstöðum. Konur eru 40,9% stjórnenda, æðstu embættismanna og löggjafa samkvæmt mælingunni, á móti 59,4% karla. Ísland er í 41. sæti á þessum mælikvarða.
Fleiri mælikvarðar skýrslunnar varpa enn skýrara ljósi á stöðu kvenna í fyrirtækjum. Konur eru 43,9% stjórnarmanna fyrirtækja, en aðeins 17,1% fyrirtækja eru með konu sem æðsta stjórnanda. Á sama tíma eru konur meðal eigenda í 58,8% fyrirtækja. Þessar tölur draga fram mikilvægan mun á þátttöku kvenna í stjórnum og því að gegna æðstu stjórnunarstöðu fyrirtækja. Þótt hlutfall kvenna í stjórnum sé orðið tiltölulega hátt er hlutfall fyrirtækja undir æðstu stjórn konu enn lágt.
Mikil atvinnuþátttaka en verulegur tekjumunur
Atvinnuþátttaka íslenskra kvenna er mikil í alþjóðlegum samanburði. Hún mælist 72,0%, samanborið við 79,1% meðal karla, og Ísland er í 14. sæti á þeim mælikvarða. Þegar kemur að tekjum verður munurinn hins vegar mun skýrari. Áætlaðar atvinnutekjur kvenna eru 53,6 þúsund Bandaríkjadalir á ári samkvæmt kaupmáttarleiðréttum útreikningum skýrslunnar, samanborið við 80,4 þúsund dali hjá körlum. Konur eru þannig með áætlaðar atvinnutekjur sem nema um tveimur þriðju af tekjum karla, og Ísland er í 67. sæti á þessum mælikvarða.
Önnur mynd blasir við þegar spurt er um laun fyrir sambærileg störf. Þar er Ísland í 3. sæti. Mælikvarðarnir tveir segja þó ólíka sögu, annars vegar um launajafnrétti fyrir sambærileg störf og hins vegar um heildartekjur kvenna og karla á vinnumarkaði.
Menntun kvenna skilar sér ekki að fullu í efnahagslegri stöðu
Menntunarstig virðist ekki eitt og sér geta skýrt þann mun sem enn er til staðar. Ísland stendur framarlega þegar kemur að háskólamenntun og konur eru fjölmennar meðal háskólamenntaðra. Mikill kynjamunur er þó enn í námsvali. Hlutfall kvenna meðal útskrifaðra á STEM-sviðum er 10,7%, samanborið við 30,9% meðal karla. Munurinn er sérstaklega mikill í upplýsinga- og fjarskiptatækni og í verkfræði, framleiðslu og byggingargreinum. Á móti eru konur mun fjölmennari í námi á sviði heilbrigðis og velferðar og í menntavísindum. Þetta skiptir máli þegar horft er til framtíðar vinnumarkaðar, þar sem tækniþróun og stafræn umbreyting geta haft veruleg áhrif á hvaða störf verða til, hvernig þau eru metin og hvar ný efnahagsleg tækifæri skapast.
Fyrsta sætið á listanum felur ekki í sér að jafnrétti sé náð
Niðurstöður Global Gender Gap Report 2026 sýna því tvíþætta mynd. Ísland stendur fremst þegar jafnrétti kynjanna er metið í heild og hefur tekið framförum í efnahagslegu jafnrétti. Engu að síður er enn umtalsverður munur á stöðu kvenna og karla þegar kemur að tekjum og æðstu stjórnunarstöðum í atvinnulífinu. Sérstaka athygli vekur bilið á milli sterkrar stöðu kvenna hvað varðar menntun og atvinnuþátttöku annars vegar og stöðu þeirra í æðstu stjórnunarhlutverkum og tekjum hins vegar. Áskorunin snýst því ekki eingöngu um þátttöku kvenna í atvinnulífinu, heldur einnig um það hvort sú þátttaka skili sér í sambærilegum efnahagslegum tækifærum, tekjum og aðgangi að æðstu stjórnunarstöðum.