Hefur kynjajafnvægi í æðstu forystu forspárgildi?

GemmaQ vísitalan fyrir félög á Aðalmarkaði íslensku kauphallarinnar hefur verið uppfærð og eru nýjustu einkunnir fyrirtækjanna aðgengilegar á Keldunni. GemmaQ hefur verið samstarfsaðili Rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi frá stofnun þess. Vísitalan mælir kynjajafnvægi í æðstu forystu fyrirtækja á kvarðanum 0-10 og byggir á hlutfalli kvenna í framkvæmdastjórnum og stjórnum. Gagnaöflun og uppfærsla gagnagrunnsins eru að stórum hluta sjálfvirknivædd.

Nýjustu tölur sýna að fimm af 27 forstjórum skráðra félaga eru konur, eða 18,5%. Hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum hefur hækkað úr 33,3% í 35,4%, en hlutfall kvenna í stjórnum lækkað úr 43,0% í 40,9%. Aðeins ein kona gegnir nú stöðu stjórnarformanns skráðs félags. GemmaQ-vísitalan fyrir markaðinn í heild hækkar úr 7,06 í 7,19.

Þegar horft er aftur til ársins 2007 sést hversu mikið staðan hefur breyst. Þá voru konur 13,8% stjórnarmanna og 11,7% framkvæmdastjóra á Aðalmarkaði, engin kona var forstjóri og 4,5% stjórnarformanna voru konur. Þróunin hefur þó verið ólík eftir stjórnunarstigum, sbr. neðanverð mynd.

Mynd: Þróun hlutfalls kvenna í forystu meðal félaga á Aðalmarkaði frá 2007

 

Samhliða þróun GemmaQ hefur Freyja Vilborg Þórarinsdóttir, stofnandi GemmaQ og doktorsnemi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, byggt upp umfangsmikinn gagnagrunn GemmaQ um stærstu 500 fyrirtækin á bandaríkjamarkaði, þar sem kynjasamsetningu stjórna og framkvæmdastjórna hefur verið fylgt yfir nokkur ár. Gagnagrunnurinn og GemmaQ-vísitalan liggja til grundvallar rannsóknum hennar á tengslum æðstu forystu og rekstrar- og fjárhagslegrar þróunar meðal fyrirtækja.

Freyja vinnur að doktorsrannsókninni undir leiðsögn Ástu Dísar Óladóttur, prófessors við Háskóla Íslands og stofnanda setursins. Nýmæli rannsóknarinnar felast í að kanna hvort breytingar á kynjajafnvægi í æðstu forystu, metnar heildstætt með samsettri GemmaQ-vísitölu, hafi forspárgildi fyrir síðari rekstrar- og fjárhagslega þróun fyrirtækja og hvernig þau tengsl þróast yfir tíma.