Frá þátttöku til áhrifa

Ný rannsókn um konur, fjárfestingar og forystu kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu

Ásta Dís Óladóttir og Þóra H. Christiansen hjá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rannsóknasetri um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi, kynna niðurstöður rannsóknar á því hvernig konur í leiðtogastöðum þróa sjálfstæði, þekkingu og áhrif sem fjárfestar á 22. European Conference on Management, Leadership and Governance (ECGLM), sem fram fer í Portúgal í dag.
Rannsóknin ber heitið From Participation to Ownership Voice: Leadership-Enabled Investor Agency og varpar nýju ljósi á þátttöku kvenna í fjárfestingum. Í stað þess að einblína eingöngu á hvort konur fjárfesti eða hversu mikið þær fjárfesti er sjónum beint að því hvernig þær öðlast sjálfstæði til að taka fjárfestingarákvarðanir, meta ráðgjöf og hafa áhrif sem eigendur, því það er eitt að eiga hlutabréf en annað að hafa sjálfstæða rödd sem fjárfestir.

Rannsóknin byggir á 25 ítarlegum viðtölum við konur á aldrinum 40–69 ára sem gegna eða hafa gegnt æðstu stjórnunarstöðum í íslensku atvinnulífi og hafa reynslu af eigin fjárfestingum.
Niðurstöðurnar benda til þess að sjálfstæði í fjárfestingum þróist í gegnum reynslu, félagsleg samskipti og tækifæri til að læra af eigin ákvörðunum. Aðgangur að faglegri þekkingu, fyrirmyndum og traustum vettvangi til að ræða fjárfestingar getur skipt miklu máli.
Rannsóknin sýnir jafnframt að þátttaka á fjárfestingamarkaði er ekki endilega það sama og raunverulegt ákvörðunarvald. Konur geta átt fjárfestingar en samt treyst öðrum fyrir mati og ákvörðunum. Sjálfstæði verður hins vegar sýnilegt þegar þær geta mótað eigin viðmið, lagt mat á ráðgjöf og tekið ábyrgð á eigin fjárfestingarákvörðunum.

Forysta getur skapað forsendur fyrir auknum áhrifum
Í rannsókninni er sjónum beint að hugtakinu leadership-enabled investor agency, sem lýsir því hvernig leiðtogar og stofnanir geta skapað aðstæður sem styðja við sjálfstæði einstaklinga í fjárfestingum.
Höfundarnir leggja til að stjórnendur og stofnanir stuðli að opnari umræðu um fjárfestingar, viðurkenni ólíkar leiðir til að verða fjárfestir, skapi tækifæri til að öðlast reynslu og styðji við sjálfstæða ákvarðanatöku.
Rannsóknin hefur þannig þýðingu fyrir umræðu um jafnrétti, forystu og góða stjórnarhætti. Hún undirstrikar að aukin þátttaka kvenna í fjárfestingum er mikilvæg, en að raunveruleg áhrif byggist einnig á því að þær hafi þekkingu, sjálfstæði og tækifæri til að beita eignarrétti sínum.

Meginboðskapur rannsóknarinnar er að jafnrétti í fjárfestingum snúist ekki aðeins um að fleiri konur komi að borðinu, heldur einnig um að þær hafi rödd og áhrif þegar ákvarðanir eru teknar.