Enn styrkist Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi.

Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi hefur fengið til liðs við sig nýjan rannsakanda, Cathrine Seierstad, prófessor í stjórnun og skipulagsfræðum við Universitetet i Sørøst-Norge (USN) og prófessor II við Kristiania háskólann.

Catherine verður hluti af öflugum hópi yfir 20 rannsakenda sem eru tengdir setrinu og vinna að rannsóknum á jafnrétti, efnahagslegri þátttöku og stöðu kynja í atvinnulífi.

Cathrine hefur víðtæka alþjóðlega reynslu úr akademísku starfi. Áður en hún hóf störf við USN starfaði hún meðal annars sem lektor við Queen Mary University of London, University of Sussex og Brunel Business School. Þá hefur hún einnig gegnt gestarannsóknarstöðu við University of Witten/Herdecke.

Rannsóknir Cathrine beinast einkum að leiðtogafræðum, stöðu kvenna í stjórnum, mannauðsstjórnun, alþjóðlegri mannauðsstjórnun, jafnrétti og fjölbreytileika á vinnumarkaði, sem og stjórnarháttum fyrirtækja og samfélagsábyrgð. Núverandi rannsóknarverkefni hennar snúa meðal annars að áhrifum kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja í alþjóðlegu samhengi, hlutverki stjórna í ólíkum tegundum skipulagsheilda og alþjóðlegri mannauðsstjórnun. Hún tekur einnig þátt í rannsóknarverkefni um inngildingu innflytjenda í Noregi.

Við Universitetet i Sørøst-Norge leiðir Cathrine rannsóknahóp á sviði stjórnarhátta, stjórnarstarfa og æðstu stjórnenda og er jafnframt námsbrautarstjóri meistaranáms í nýsköpun og leiðtogafræðum. Ásta Dís Óladóttir stofnandi setursins segir ,,að fá Cathrine til liðs við okkur hjá setrinu styrkir enn frekar alþjóðlegt rannsóknasamstarf þess og eykur þekkingu á sviðum sem eru lykilatriði í umræðu um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi.“