Hrefna Guðmundsdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands, dvelur nú sem gestarannsakandi við Kyoto University, nánar tiltekið við Graduate School of Management. Dvölin er hluti af doktorsrannsóknum hennar sem snúa að jafnrétti, hæfnistjórnun og notkun gervigreindar í skipulags- og mannauðsstjórnun.
Hrefna hlaut styrki bæði frá Watanabe Trust Fund og Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation, sem gera henni kleift að dýpka rannsóknir sínar í japönsku akademísku umhverfi og efla alþjóðlegt samstarf á sviði jafnréttis og nýrrar tækni. Hún starfar undir leiðsögn Asli M. Colpan prófessors og hefur aðstöðu á skrifstofu gestaprófessora deildarinnar, þar sem hún vinnur samhliða öðrum doktorsnemum, meðal annars frá Uppsala University og frá Kína. Slíkt rannsóknarumhverfi skapar dýrmætt rými fyrir frjótt fræðilegt samtal og samanburð milli ólíkra landa og kerfa.
Hrefna mun dvelja í Japan fram í mars. Kyoto háskólinn, sem er næstelsti háskóli Japans með um 23.000 nemendur, er staðsettur í norðurhluta Kyoto. Háskólasvæðið er víðfeðmt og líflegt, svo stórt að skýrar leiðbeiningar og merkingar á hverju horni eru nauðsynlegar fyrir bæði nemendur og gesti.Dvölin er mikilvægt skref í alþjóðlegri tengingu rannsókna Rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi og undirstrikar vaxandi samstarf Íslands og Japans á sviði jafnréttis, stjórnunarrannsókna og nýsköpunar.