Barátta Hallgerðar á erindi á öllum tímum

Misrétti kynjanna er ekki nýtt viðfangsefni. Allt frá því að land var numið hefur misrétti kynjanna og kvennabarátta verið okkur hugleikin; það sést í þeim sögum sem við erum svo heppin að eiga og ég mæli eindregið með að fólk lesi reglulega til að minna sig á hvaðan við komum og hver við erum.

Margar þær konur sem við lesum um í Íslendingasögunum standa í stöðugri baráttu við að rétta sinn hlut og hafa margar verið dæmdar hart af lesendum sagnanna fyrir að vera frekar og leiðinlegar, yfirgangssamar og erfiðar. Raunar hefur ekki mikið breyst hvað það varðar þar sem við tölum frekar um erfiðar og frekar konur en karla af einhverjum orsökum.

Sú erfiðasta og frekasta af þeim öllum er líklega Hallgerður langbrók en hún var sögð „örlynd og skaphörð.“ Um hana hafa lesendur Njálu deilt öldum saman. Auðvitað var það hún sem varð til þess að maðurinn sem við elskum öll, Gunnar á Hlíðarenda, féll þar sem hún vildi ekki láta hann fá lokk úr hári sínu þegar bogastrengur hans slitnaði.

En málið er ekki svo einfalt. Við skulum aðeins hugsa um örlög Hallgerðar. Hún var þrígift og var auðvitað ekki sátt við að vera skellt í hjónaband á unga aldri. Hún var hreint ekki sátt við fyrsta manninn og fannst „ráð þetta eigi svo mikils háttar.“ Illa fór fyrir þeim manni. Þjóstólfur, fóstri Hallgerðar, vó hann en Þjóstólfur þótti „engi skapbætir Hallgerði.“

Næsti maður Hallgerðar var Glúmur. Hann var reyndar varaður við enda væri hún þegar búin að láta vega einn eiginmann. Hann lét þó ekki segjast og Hallgerði leist vel á hann. Þá er hún orðin slíkur skörungur að hún „festi sig sjálf“ en var ekki gefin Glúmi og sérstaklega er tekið fram að „helmingarfélag“ skyldi vera með þeim. Þarna sjáum við hvað efnahagslegt sjálfstæði skiptir miklu og um leið hvað Hallgerður hefur verið dæmd hart af sögunni fyrir að vilja ráða sínum hjúskap sjálf og njóta jafnræðis í kjörum.

Ógæfan fylgdi Hallgerði því henni linnti vel við Glúm en Þjóstólfur fóstri hennar snéri aftur og vó líka eiginmann númer tvö. Hallgerður var því ung að árum orðin tvöföld ekkja. En hún var öflug bústýra því að „fé hennar gekk fram og gerðist mikið.“ Aftur er efnahagsleg barátta Hallgerðar undirstrikuð. Það er ekki að undra að hún hafi verið talin ógn við karlveldið — og reyndar spilaði inn í að eiginmennirnir máttu ekki vænta langra lífdaga! En saga Hallgerðar er að hluta til saga um baráttu kvenna fyrir efnahagslegu sjálfstæði sínu.

Jafnrétti kynjanna er nefnilega margþætt og kallar á heildræna sýn á samfélagið. Efnahagslegt sjálfstæði er ein forsenda jafnréttis en við getum nefnt ýmsar aðrar.

Yfirráð kvenna yfir eigin líkama hafa lengi þótt undirstaða fyrir jafnrétti kynjanna en um leið verið einna umdeildust sem sést á því að verulegt bakslag hefur orðið í þeim málum á undanförnum árum, bæði vestanhafs og austanhafs. Við Íslendingar eigum hins vegar framsækna löggjöf á þessu sviði sem naut breiðs stuðnings af hinu pólitíska lirófi.

Kynbundið ofbeldi er önnur birtingarmynd misréttis. Þar hefur mikið unnist hér á Íslandi á undanförnum árum og áratugum. Miklar breytingar hafa orðið á viðhorfum til heimilisofbeldis sem og löggjöf og framkvæmd lögreglu í þessum málum sem eru um helmingur allra tilkynntra ofbeldisbrota á Íslandi — það er sláandi tölfræði sem segir mikla sögu.

Þriðja vaktin er enn ein birtingarmynd misréttis þar sem konur eru iðulega undir meira andlegu álagi við að hugsa um tómstundir, afmæli, jólagjafir og allar þær kröfur sem samfélagið leggur á okkur í samtímanum fyrir utan að vaska upp, þvo þvott og elda mat.

Og svo er það hið efnahagslega sjálfstæði sem er margbrotið.

Kvennafrídagurinn árið 1975 markaði tímamót í jafnréttisbaráttu íslenskra kvenna. Barátta þeirra snerist ekki eingöngu um launamun kynjanna heldur ýmsa aðra þætti sem eru grunnforsenda fyrir efnahagslegu jafnrétti. Baráttan fyrir fæðingarorlofi og almennum leikskólum var ekki einungis barátta fyrir fjölskyldur heldur einnig barátta fyrir því að konur þyrftu ekki að velja á milli þess að stofna fjölskyldu eða taka þátt í samfélaginu, hvort sem er á vinnumarkaði eða við opinbera ákvarðanatöku.

Þær breytingar sem gerðar voru á leikskólum og fæðingarorlofi eru líklega stærstu breyturnar í því að Ísland hefur mælst best í heimi í jafnréttismálum að mati Alþjóða efnahagsráðsins sautján ár í röð og forsenda þess að atvinnuþátttaka kvenna er há sem og þátttaka þeirra í opinberri ákvarðanatöku.

En tölurnar segja flóknari sögu en þessa. Þar nægir að skoða efnahagslega stöðu kvenna á þessum sama lista Alþjóða efnahagsráðsins. Þá er Ísland í 10. sæti hvað varðar efnahagslega þátttöku og tækifæri, konur eru um 41% stjórnenda og æðstu embættismanna og aðeins 17% fyrirtækja eru með konu sem æðsta stjórnanda. Þannig að þótt hlutfall kvenna í stjórnum sé orðið tiltölulega hátt er hlutfall fyrirtækja undir æðstu stjórn konu enn lágt.

Annað áhugavert atriði eru áætlaðar atvinnutekjur kvenna en konur eru með áætlaðar atvinnutekjur sem nema um tveimur þriðju af tekjum karla, og Ísland er í 67. sæti á þessum mælikvarða. Önnur mynd blasir við þegar spurt er um laun fyrir sambærileg störf. Þar er Ísland í 3. sæti. Mælikvarðarnir tveir segja þó ólíka sögu, annars vegar um launajafnrétti fyrir sambærileg störf og hins vegar um heildartekjur kvenna og karla á vinnumarkaði.

Það eru einmitt þessi atriði sem gera það að verkum að við ákváðum að setja á laggirnar Rannsóknasetur um jafnrétti í atvinnu- og efnahagslífi sem heyrir undir viðskiptadeild Háskóla Íslands og Arionbanki hefur stutt myndarlega við — það er vegna þess að við eigum við að stefna að fullu jafnrétti og þá þurfum við að ná auknum árangri í efnahagslegu jafnrétti — og til þess þurfum við gögn og staðreyndir til að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir.

Jafnrétti er ákvörðun. Og við eigum að byggja ákvarðanir okkar á gögnum og staðreyndum og þau tala sínu máli. Við eigum enn töluvert í land með að ná fullu jafnrétti en hver einasta ákvörðun sem er tekin í þágu jafnréttis skilar okkur aðeins nær markmiðinu. Göngum inn í hvern nýjan dag með það í huga að ákvarðanir sem við tökum geta haft áhrif til góðs og skilað okkur nær því að við njótum öll sömu réttinda.

Katrín Jakobsdóttir
Greinin byggist á ræðu sem flutt var hjá Arion-banka í tilefni átaksins Konur fjárfestum.