Ásta Dís Óladóttir og Katrín Jakobsdóttir fluttu í vikunni ávarp og erindi og tóku þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu Equalis í Kaupmannahöfn um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi.
Á ráðstefnunni var m.a. kynnt Diversitetsbarometeret, sem byggir á greiningu gagna og varpar ljósi á stöðu jafnréttis og fjölbreytni á danska vinnumarkaðnum. Slík gagnadrifin verkfæri skipta sköpum þegar markmiðið er að byggja ákvarðanir á staðreyndum frekar en tilfinningu.
Við fjölluðum um íslenska reynslu af kynjakvótum í stjórnum fyrirtækja og jafnlaunavottun. Sú kerfisbundna nálgun að setja skýr viðmið, mæla árangur og festa ábyrgð í innan fyrirtækja hefur vakið mikla athygli erlendis.
Umræðurnar sýndu að áhuginn er raunverulegur, því hvernig tryggjum við að jafnrétti verði ekki aðeins yfirlýst stefna heldur mælanleg og varanleg niðurstaða?
Ísland er í auknum mæli hluti af þeirri alþjóðlegu umræðu og Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi eftirsóttur samstarfsaðili.