Hvernig geta íslenskir lífeyrissjóðir fjárfest með kynjagleraugum?

Hvernig geta íslenskir lífeyrissjóðir fjárfest með kynjagleraugum?

Freyja Vilborg Þórarinsdóttir, doktorsnemi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rannsakandi hjá Rannsóknasetri um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi, kynnti nýlega niðurstöður rannsókna sinna á fjárfestingum með kynjagleraugum á fundi Landssamtaka lífeyrissjóða.

Í erindi sínu fjallaði Freyja um hvernig hlutabréfasjóðir og lífeyrissjóðir skilgreina og innleiða jafnréttisviðmið í fjárfestingastefnu sinni og hversu ólík nálgunin getur verið í framkvæmd. Hún kynnti jafnframt nýjan greiningarramma sem metur slíkar áherslur út frá tveimur lykilvíddum: breidd sjónarmiða og dýpt eftirfylgni.

Breidd vísar til þess hversu mörg og víðtæk jafnréttissjónarmið eru tekin til greina við fjárfestingarákvarðanir, t.d. hvort horft sé til kynjahlutfalla í stjórnum, framkvæmdastjórnum, launajafnréttis, gagnsæis eða annarra þátta. Dýptin segir hins vegar til um það hversu markvisst og gagnsætt sjóður fylgir þessum viðmiðum eftir í framkvæmd, þ.e. hvort þau birtast í stefnu, virku eignarhaldi, mælingum og opinberri upplýsingagjöf.

Freyja sýndi fram á að erlendis má finna dæmi um lífeyrissjóði sem hafa þróað skýra og samþætta nálgun þar sem jafnréttissjónarmið eru ekki jaðarviðmið heldur hluti af kjarnastefnu fjárfestinga. Slík nálgun byggir á skýrum markmiðum, reglulegri mælingu og gagnsæi um árangur.

Í erindinu lagði hún jafnframt fram raunhæfar tillögur að næstu skrefum fyrir íslenska lífeyrissjóði, svo sem að:

  • setja skýr og mælanleg markmið um jafnréttisáherslur í eignasafni,
  • gera viðmið sýnileg í fjárfestingarstefnu og eigendastefnu,
  • útskýra með skýrum hætti hvernig þeim er fylgt eftir,
  • birta reglulega samræmd gögn um stöðu og þróun.

Freyja benti einnig á að lífeyrissjóðir gætu byrjað á því að beita kynjagleraugum á afmarkaðan hluta eignasafns síns og fylgja þeirri nálgun markvisst eftir, líkt og dæmi eru um hjá erlendum langtímafjárfestum. „Lífeyrissjóðir eru meðal áhrifamestu langtímafjárfesta samfélagsins. Með markvissri samþættingu jafnréttissjónarmiða geta þeir nýtt vægi sitt til að styðja við jákvæðar og varanlegar breytingar,“ segir Freyja.

Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni Freyju, sem unnið er undir leiðsögn Ástu Dísar Óladóttur, prófessors við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og stofnanda Rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi, með dyggum stuðningi Rannís og helsta bakhjarl setursins, Arion banka.

Með þessari vinnu leggur setrið sitt af mörkum til vaxandi alþjóðlegrar umræðu um hlutverk fjármagns í að móta jafnari og sjálfbærari framtíð.