Hvernig lokum við kynjabilinu í atvinnulífinu?

Mælaborð Jafnvægisvogar FKA

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi með Creditinfo, Deloitte, forsætisráðuneytinu, Pipar\TBWA, RÚV, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá.

Verkefninu var komið á fót á árinu 2017 og hefur átt þátt í að styðja við virði fjölbreytileika og jafnvægi með auknum jöfnuði kynja í stjórnunarstöðum,

Tilgangur verkefnisins

  • Að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi
  • Að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir
  • Að veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar
  • Að standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis
  • Að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöðu

Af gögnum mælaborðsins má dæma að markmiðið sem sett var árið 2017 um 40/60 hlutfall kynja mun ekki nást.